Í sal hans hátignar
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Í sal hans hátignar konan kom
en konan eitthvað domm var.
Þá tók hann stóra flösku fram;
í flösku þeirri romm var.
Og konan gladdist og kóngsins drykk
hún kurteis að vörum sér bar.
Svo bauð hann henni að breskum sið
að bragða hjá sér viskíið
en hellti þó sérríi saman við
því hann séntilmaður var,
því að séntilmaður hann var.
Hann bauð henni sæti við borð úr eik
og breskum réttum hlaðið.
Já, þar var bæði beikon og egg
og blessað marmelaðið.
Og konan gladdist og gleypti fljótt
þær gómsætu kræsingar;
því rétt sem aðrir íslenskir
hún aldrei hafði neitt bragðað fyrr
nema gellur og hausa og graðhestasky
eða grásleppur kasúldnar.
Slíkt er talið þjóðlegt þar.
Af víni konan var orðin ör
og augun tekin að glansa.
Þá bukkaði kóngur og beygði sig
og bauð henni upp að dansa.
Og konan með brosi því boði tók
og blævænginn sundur dró.
Og út á gólfið þau liðu létt
í Loðvíks 14. menúett;
og konan var orðin kókókett
að í kóngi hjartað sló
troppó forte, allegrettó.
Og nóttin kom og konan sig
klæddi hægt og seint úr;
(en reyndar þó hún furðu fljótt
var farin alveg hreint úr).
Og kóngur í hjartanum fögnuð fann
og fiðring hér og þar;
því brjóst hennar voru býsna stór
og barmurinn reis sem ólgusjór
en sjálfur úr engu samt hann fór
því hann séntilmaður var,
því að séntilmaður hann var.
[m.a. á plötunni Þrjú á palli – …eitt sumar á landinu bláa]














































