Í Svartaskógi

Í Svartaskógi
(Lag / texti: Sigurður Gylfi Björnsson / Hákon Aðalsteinsson)

Vorsólin brosir blíð
boðar oss sumartíð.
Rómantísk kyrrð er rofin út í Hlíð.
Í kliði, kyrrð og ró
kvöldar um sund og mó.
Dúnmjúkir tónar svífa um Svartaskóg.

Við Héraðs hjartaslátt
húmar um loftið blátt.
Dyrfjöllin stoltu gnæfa í austur átt.
Selurinn út við sjó
sefur í kyrrð og ró.
Bjarkirnar ilma í brekku við Svartaskóg.

Brennheitt blóðið er
best að gá að sér.
Mörg ungmeyjan saklaus reynslunni héðan ríkari fer.
Mér verður um og ó
því úti um holt og mó
Margt rómantískt parið reikar um Svartaskóg.

Í gleði göngum öll
götur um hól og völl,
uns morgunsól glettin mynnist við dal og fjöll.
Af kæti komið nóg
í kyrrð og sálarró.
Drekkum við síðasta drykkinn við Svartaskóg.

[m.a. á plötunni Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar – Austfirskir staksteinar III]