Jesús Pétur, Kiljan og hin heilaga jómfrú og aumingja ég
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Veistu hvað ég heyrði í dag?
Harmingjan er skrítið lag.
Enga á ég frasa.
Jú kannski þennan, þennan
sem leyfir allt
þegar hamingjuhjólið er valt.
Tunglið tunglið taktu mig.
Taktu mig strax í dag.
Þangað sem stjörnurnar fara
þá skal ég syngja þér lag.
Sumir syngja á íslensku – vá! Æðislegt, flott.
Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott.
Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens.
Maður sem syngur þannig eignast aldrei Bens.
Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú,
Hallgrímur Pétursson – hvað geri ég nú?
Veistu hvað ég heyrði í dag?
Ísland á sitt ömurlega lag.
Ekki er ég að þrasa.
Enga á ég frasa.
Jú kannski þennan, þennan sem leyfir allt
þegar hamingjuhjólið er valt.
Tunglið tunglið taktu mig.
Taktu mig strax í dag.
Þangað sem hetjurnar fara.
Þá skal ég syngja þér lag.
Sumir syngja á íslensku – æðislegt, flott.
Ekki þykir mönnum það í útlöndum gott.
Nei skrælingja mállýskur meika ekki sens.
Maður sem syngur þannig eignast aldrei Bens.
Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú,
Hallgrímur Pétursson – hvað geri ég nú?
[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]














































