Júpíter

Júpíter
(Lag og texti: Elín Hall)

Júpíter hvað viltu frá mér?
Togar að þér, þeytir frá þér.
Er þú snerist ég þig elti.
Stærsta afl í stjörnubelti.

Fannstu mig þegar ég fór?
Í janúar vildir þú jól.
Júpíter þú ert einmana stjarna sem grætur
sólina um nætur.

Júpíter ég gaf þér merki.
67, þú horfðir ekki.
Og ef ég átti orðin til að sefa storminn í þér,
Júpíter þú heyrðir ekki.

Fannstu mig þegar ég fór?
Í janúar vildir þú jól.
Júpíter þú ert einmana stjarna sem grætur
sólina um nætur.
(2x)

Ég er að tala, ég er að tala en þú heyrir ekki.
Muntu svara, muntu þú svara eða ekki?
Ég er að tala, ég er að tala en þú heyrir ekki.

[af plötunni Elín Hall – Heyrist í mér?]