Láttu sem þú sofir

Láttu sem þú sofir
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Reykurinn sefaði allar sorgir.
Stórstígir draumar skýjaborgir.
Vakti ég á Vogi um dimma nótt.
Vakti ég á Vogi, þar var engum rótt.
Bíum bíum bamba,
börnin eitrið þamba.
Láttu sem þú sofir,
samt skaltu vaka.
Í brjóstinu býr
konu hjarta í klaka.
Sogið hef ég fleiri en fimm,
fengið borgað góði.
Aldrei grátið, verið grimm.
Nálar baðað blóði.
Tíu og sex eru árin mín.
Ástin mín er amfetamín
og systir hennar kókaín.
Þær vilja ekki skilja.
Þær vilja ekki við mig skilja.
Bíum bíum bamba.
Láttu sem þú sofir,
samt skaltu vaka.
Í brjóstinu býr
konu hjarta í klaka.
Vakti ég á Vogi um dimma nótt.
Vökumanninn kveð ég stillt og hljótt.

[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]