Leyndarmál frægðarinnar

Leyndarmál frægðarinnar
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Klukkan er fjögur að morgni,
við höfum elskast alla nóttina.
Bílar fara í gang úti á horni,
sólin skein á brúna öxlina.

Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar,
sem er að stórum hluta einsemdin
og stundum fallegt bros.

Hár þitt eins og gylltur stormur
flæddi niður herðar og bak.
Þú hreyfðir þig eins og latur köttur
sem hefur fengið á bráð sinni tak.

Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar,
sem er að stórum hluta einsemdin
og stundum fallegt bros.

Margir hafa elskast á undan
en við tvö vorum aðeins of sein
til þess að við fengjum boð um inngang
svo við byggðum okkur afmarkaðan heim.

Og þú spurðir mig um leyndarmál frægðarinnar
sem er að stórum hluta einsemdin
og stundum falskt bros.

[af plötunni Bubbi Morthens – Frelsi til sölu]