Mundu eftir mér (Eurovision – Ísland 2012)
(Lag og texti: Greta Salóme Stefánsdóttir)
Hún syngur hljótt í húminu.
harmaljóð í svartnættinu.
Í draumalandi dvelur sá
sem hjarta hennar á.
Hann mænir út í myrkrið svart,
man þá tíð er allt var bjart.
Er hún horfin, var það satt
að ástin sigri allt.
Og seinna þegar sólin vaknar, sameinast á ný
þær sálir tvær sem áður skildu, ástin veldur því.
Mundu eftir mér þegar morgun er hér,
þegar myrkrið loks á enda er.
Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
að ég trúi því að dagur renni á ný.
Hún minnist þess við mánaskin,
mættust þau í síðasta sinn.
Hann dreymir hana dag og nótt
að hún komi til hans skjótt.
Og seinna þegar sólin vaknar, sameinast á ný
þær sálir tvær sem áður skildu, ástin veldur því.
Mundu eftir mér þegar morgun er hér,
þegar myrkrið loks á enda er.
Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
og ég trúi því að dagur renni á ný.
Mundu eftir mér þegar morgun er hér,
þegar myrkrið loks á enda er.
Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
og ég trúi því að dagur renni á ný.
Því ég trúi því að dagur renni á ný.
Já ég trúi því að dagur renni á ný.
[m.a. á plötunni Greta Salóme – Never forget [ep]]














































