Næturfjör (Þjóðhátíðarlag 1990)
(Lag / texti: Ólafur M. Aðalsteinsson / Guðjón Weihe)
Hamrarnir háu
í heillandi tign,
tjöldin og tjörnin
svo töfrandi lygn.
Lokkandi laða
í logunum skýrð.
Hvern sem að kemur
í klettanna dýrð.
Hér finn ég framandi
og funheita glóð,
sem eldur í æðunum
ólgar mitt blóð.
Danslagið dunar
við dillandi söng.
Nú fer að nátta
og nóttin er löng.
Lífsgleðin ljómar
við logandi bál.
Kvöldsöngva kyrjar
hver einasta sál.
Lífinu lætur
að líða svo fljótt.
Dönsum og dönsum
í dalnum í nótt.
Sælt er að sitja við
sjafnareld þann,
sem umvefur ungan
og ástfanginn mann.
Komdu minn kæri
og kysstu mig fljótt.
Eigum við vinur
að dansa í nótt?
Lífsgleðin ljómar
við logandi bál.
Kvöldsöngva kyrjar
hver einasta sál.
Lífinu lætur
að líða svo fljótt.
Dönsum og dönsum
í dalnum í nótt.
Dönsum og dönsum
í dalnum í nótt.
[af plötunni Í brekkunni – ýmsir]














































