Ostrur

Ostrur
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)

Strekkja yfir bólurnar,
þær sökkva sér í forina,
ostrurnar.
Hanga svo á næsta bar
í stíl við blóðrautt sólarlag,
elskurnar.
Það er enginn guð,
það er enginn guð,
þær halda sig í fjörunni,
þær halda uppi fjörinu,
ég horfi á þær.

Sé þær gegnum rúðuna,
þær hanga á gamla horninu,
ostrurnar.
Stundum svoldið grátbólgnar,
stundum svoldið úrillar,
elskurnar.
Guð ekur kadilják,
guð ekur kadilják*,
ég skildi ekkert eftir þegar ég fór
nema fingraför í meikinu.

*Reyndar ferðast Guð aðallega í strætó þessa dagana.

[m.a. á plötunni S.h. draumur – Goð]