Rauðir draumar

Rauðir draumar (úr kvikmyndinni Kuldi)
(Lag og texti: Elín Hall)

Ég fann þig á fingraförum,
með fjandann á fögrum vörum
og það vakti eitthvað volað í mér.
En segðu mér óttastu hnykkinn
of mikið til að taka í gikkinn?
Aldrei var munnur þinn svo næturkaldur.
Var ástin þín eitthvað meira en svartagaldur?

Ó ef ég lifi af annan dag
mun þá skugginn skríða af stað?
Ó faðir hvíldu mitt kverkatak
og gjör mig ljós uns blóðið rennur kalt.

Myrkurhöndin klappar og klórar.
Er það hugur eða hugarórar?
Það eru hliðar tvær á sama eyri
svo ég kyngi eitri og vona að það þig deyði.

Ó ef ég lifi af annan dag
mun þá skugginn skríða af stað?
Ó faðir hvíldu mitt kverkatak
og gjör mig ljós uns blóðið rennur kalt.

Rauðir draumar, allt sem eftir er.
Rauðir draugar, útlínur af þér.
Rauðir draumar, allt sem eftir er.
Rauðir draugar, útlínur af þér…

Sjáðu tunglið grætur
þessar kvíðanætur,
unga ástin mín.
Sjáðu tunglið grætur
þessar kvíðanætur.
Ég skal bíða þín…

[af plötunni Elín Hall – Heyrist í mér?]