Rúlletta

Rúlletta
(Lag og texti: Jón Ragnar Jónsson, Friðrik Dór Jónsson, Aron Can Gultekin, Árni Páll Árnason, Rúrik Gíslason og Þormóður Eiríksson)

Hún snýr mér í hringi
og er alveg á róli‘ eins og rúlletta.
Vefur mér á fingri
og er í tómu tjóni en hún púllar það.
En hvernig nær hún mér alltaf?
Hvernig getur hún kvartað
þegar‘ ég búinn að gera allt.
Ég myndi tæma þessa vasa,
ég myndi klæða hann í Prada
en þá er það ekki lengur það sem hún þarf.

En ef þú gefur mér sjéns
þá muntu ekki sjá eftir því.

Ef þú átt til eitt augnablik
myndirðu eyða því í mig?
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ég vil ekki vaka – hey
og hugsa til baka – nei
um orðin sem ég sagði aldrei.
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ah – hún lýsir upp pleisið.
Já hún er með kraft eins og kjarnorka,
setur upp pókerfeisið.
Mér tekst aldrei að ná að lesa það.
Já bara hvernig hún angar,
lætur mig alltaf langa
að fá fikra mig aðeins nær.
Ég gæfi gull, græna skóga,
allt sem hún vill, meira en nóg
en þá er það ekki lengur það sem hún þarf.

En ef þú gefur mér sjéns
þá muntu ekki sjá eftir því.

Ef þú átt til eitt augnablik,
myndiru eyða því í mig?
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ég vil ekki vaka – hey
og hugsa til baka – nei
um orðin sem ég sagði aldrei.
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Með mig í vasanum,
hún var ekki hluti‘ af planinu – ó nei nei nei.
Illt í hjartanu þegar ég horfi á hana
labba burt – frá mér.

Ef þú átt til eitt augnablik,
myndirðu eyða því í mig?
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ég vil ekki vaka – hey
og hugsa til baka – nei
um orðin sem ég sagði aldrei.
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ef þú átt til eitt augnablik,
myndirðu eyða því í mig?
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

Ég vil ekki vaka – hey
og hugsa til baka – nei
um orðin sem ég sagði aldrei.
Ef þetta sinn er seinasta sinn,
ég vil ekki eiga það inni.

[m.a. á plötunni Iceguys – 1918]