Segðu mér allt (Eurovision – Ísland 2003)
(Lag / texti: Hallgrímur Óskarsson / Hallgrímur Óskarsson og Birgitta Haukdal)
Í hugann koma’ upp spurningar.
Já, þær sem aðeins tíminn fær svarað.
Við kljúfa verðum öldurnar
og hreinsa út hvað okkur fær nagað.
Hlustaðu á mig,
ég á mér bjartan draum.
Ég vil sjá þig
eins og þú ert.
Hver ert þú í raun?
Segðu mér allt,
sýndu mér heim.
Allt lífið er framundan.
Augnablik eitt
öllu fær breytt
ef aðeins þú opnar fyrir mér.
Ef þú opnar fyrir mér.
Mitt hjarta ég vil gefa þér,
við hlið þér ég vil ganga lífsins veg.
Í mínum draumum er ég sef,
finn ilm af þér á sólbjörtum degi.
Segðu mér allt,
sýndu mér heim.
Allt lífið er framundan.
Augnablik eitt
öllu fær breytt
ef aðeins þú treystir mér.
Það er svo furðulegt hér,
tilfinningarnar að tjá.
Það er svo yndislegt að sjá.
Segðu mér allt,
sýndu mér heim.
Hvað er framundan?
Augnablik eitt
fær öllu breytt
ef aðeins þú treystir mér.
Segðu mér allt,
sýndu mér heim.
Allt lífið er framundan.
Augnablik eitt
öllu fær breytt
ef aðeins þú opnar fyrir mér.
Ef aðeins þú opnar fyrir mér.
[m.a. á plötunni Birgitta – Open your heart [ep]]














































