Síðasti dans í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1987)

Síðasti dans í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1987)
(Lag / texti: Kristinn Svavarsson / Árni Johnsen)

Það kvöldar við bergið og blær fer um strönd.
það brimar í hjarta og hlý er mín hönd.
Hljóðlát fer nóttin um hlíðar og grund
og helgar okkar fund.

Ég finn að við elskum hvort annað svo heitt.
Eitthvað í hjartanu er orðið breytt.
Við vöggum í dansi við draumanna nið
og dalsins fuglaklið.

Við syngjum saman þennan söng,
því hann er minn og þinn.
Við göngum götuna mót gæfu
sem er þín og mín.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Við eigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.

Það titrar í brjóstum af brennandi þrá,
og brosið þitt segir mér allt sem má.
Á djúpbláum himninum dillar sér ský
uns dagar enn á ný.

Við syngjum saman þennan söng.
því hann er minn og þinn.
Við göngum götuna mót gæfu
sem er þín og mín.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Við eigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.

Sóló

Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Við eigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.
Og dansinn dunar enn.
Síðasti dansinn senn.
Við eigum stjörnu á næturhimni.
Ástin mín ein.

[m.a. á plötunni Í Dalnum – ýmsir]