Kvennakór var starfræktur undir nafninu Söngflokkur íslenskra kvenna í Minneapolis innan kvenfélagsins Heklu í Minneapolis í Minnesota en söngfélagar munu þó einnig hafa komið úr byggðum Vestur-Íslendinga í nágrannafylkjunum.
Söngflokkur íslenskra kvenna í Minneapolis mun að öllum líkindum hafa verið stofnaður árið 1939 en kom fyrst fram á opinberum tónleikum vorið 1940 undir stjórn Hjartar Lárussonar en hann var stjórnandi kórsins alla tíð. Söngflokkinn skipuðu sautján konur árið 1941, flestar íslenskar og mun kórinn einvörðungu hafa sungið á íslensku. Hann var töluvert virkur, söng á skemmtunum og hátíðahöldum tengdum íslenska samfélaginu í Minnesota en einnig við kirkju lútherska safnaðarins, þá söng kórinn einnig í nokkur skipti í útvarpi.














































