Stingið henni í steininn
(Lag / texti: Jón Ragnar Jónsson, Friðrik Dór Jónsson, Aron Can Gultekin, Árni Páll Árnason og Rúrik Gíslason)
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpurinn.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpurinn.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Stingið henni‘ í steininn,
framlengt gæsluvarðhald.
Gefið henni eitt símtal og ég svara.
Hægri hönd á Biblíuna,
segi sannleikann og ekkert nema hann.
Fegurð þín kallar á eftirför,
varðar við almenn hegningarlög.
Hægri hönd á Biblíuna,
ég mun alltaf vilja hana.
Sé það niðurstaða dómarans
að hún fái að fljúga frjáls
þá mun ég virða orðin hans.
Fæ samt kökkinn upp í háls
svo ég græt og ég græt og ég græt.
Já ég græt bara græt bara græt
og ég græt og ég græt og ég græt.
Hún er að komast upp með glæp.
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpurinn.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpur.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Hún þarf ekki að tjá sig
þegar hún horfir svona á mig.
Liggjum saman undir grun,
fáum lögmann í málið
og hún flýgur frjáls.
Hún veit alveg hvað hún er að gera
bak við lás og slá
er þar sem hún ætti að vera
og ég græt og ég græt og ég græt
og ég græt bara græt bara græt
og hún hlær og hún hlær og hún hlær.
Hún er að komast upp með glæp.
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpur.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Stingið henni í steininn
því þessi fegurð er glæpur.
Hún á hugarheiminn minn
alla daga, allar nætur.
Kæri dómari, kæri kæri dómari.
Kæri dómari, kæri kæri dómari.
Kæri dómari, kæri kæri dómari.
Hún er að komast upp með glæp.
Kæri dómari.
Stingið henni í steininn.
Kæri dómari.
Því þessi fegurð er glæpur.
Kæri dómari.
Hún á hugarheiminn minn.
Kæri dómari.
Alla daga, allar nætur.
Kæri dómari.
Stingið henni í steininn.
Kæri dómari.
Því þessi fegurð er glæpur.
Kæri dómari.
Hún á hugarheiminn minn.
Alla daga, allar nætur.
[m.a. á plötunni Iceguys – 1918]














































