Stjúpi

Stjúpi
(Lag / texti: erlent lag / Þorsteinn Eggertsson)

Stjúpi spilaði á munnhörpu og gítar,
systir mín sló taktinn á við þrjá.
Ég söng, mamma gamla heyrði ekkert
en með varalestri vissi hún hvað gekk á.

Þessi hljómsveit var það sem við lifðum fyrir
og hún var líka okkar eina tekjulind.
En hún líktist engri venjulegri hljómsveit
því augu gamla stjúpa voru blind.

Stjúpi og mamma treystu á hvort annað,
örkuml þeirra gerði bæði sterk.
Mamma gamla ók fjölskyldubílnum
en stjúpi samdi texta og tónverk.

Oftast nær við áttum heima í tjaldi
og við fluttum sífellt stað úr stað.
Samt minnist ég þess ekki að við sveltum
mömmu hagsýni kom í veg fyrir það.

Stjúpi spilaði á munnhörpu og gítar,
systir mín sló taktinn á við þrjá.
Ég söng, mamma gamla heyrði ekkert
en með varalestri vissi hún hvað gekk á.

Þessi hljómsveit var það sem við lifðum fyrir
og hún var líka okkar eina tekjulind.
En hún líktist engri venjulegri hljómsveit
því augu gamla stjúpa voru blind.

Ekkert veit ég um hvernig þau kynntust,
ég held ég hafi aldrei heyrt það nefnt.
En kannski hefur einhver hjálpað til þess,
guð blessi hann sem hefur að því stefnt.

Faraldur tók heyrnina frá mömmu,
stjúpi fæddist ei með neina sjón.
En mamma þurfti mann sem hún gat skilið,
kannski var það best þau stjúpi urðu hjón.

Stjúpi spilaði á munnhörpu og gítar,
systir mín sló taktinn á við þrjá.
Ég söng, mamma gamla heyrði ekkert
en með varalestri vissi hún hvað gekk á.

Þessi hljómsveit var það sem við lifðum fyrir
og hún var líka okkar eina tekjulind.
En hún líktist engri venjulegri hljómsveit
því augu gamla stjúpa voru blind.

Stjúpi spilaði á munnhörpu og gítar,
systir mín sló taktinn á við þrjá.
Ég söng, mamma gamla heyrði ekkert
en með varalestri vissi hún hvað gekk á.

Þessi hljómsveit var það sem við lifðum fyrir
og hún var líka okkar eina tekjulind.
En hún líktist engri venjulegri hljómsveit
því augu gamla stjúpa voru blind.

[m.a. á plötunni Brimkló – Rock‘n roll (öll mín bestu ár)]