Stund með þér (Þjóðhátíðarlag 2007)

Stund með þér (Þjóðhátíðarlag 2007)
(Lag / texti: Eyvindur Steinarsson og Þórarinn Ólason / Heimir Eyvindarson)

Líður að kveldi, ég læðist til þín.
Logarnir liðast og vindur hvín.
Stjörnur á himni, ég stari í þær.
Færi mig nær.

Eldarnir loga þó allt verði hljótt,
ástin sem vakir jafnt dag sem nótt.
Hvað sem ég geri, hvert sem ég fer
ég hef þig í huga mér.

Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér?
Ágústnótt í Dalnum og ég er fallinn fyrir þér.

Tímarnir breytast og mennirnir með,
dagarnir líða, allt getur skeð.
Samt held ég vina ég viti um eitt
sem ekkert fær breytt.

Þig mun ég elska, þig mun ég þrá
þar til að endingu allt er frá.
Þá hafa gengið um æviveg
ástin mín, þú og ég.

Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér?
Ágústnótt í Dalnum og ég er fallinn fyrir þér.

Verð að vita það.
Verð að vita, viltu eiga stund með mér?
Ágústnótt í Dalnum og ég er fallinn fyrir þér.
Og ég spyr þig viltu eiga stund með mér?
Ágústnótt í Dalnum og ég er fallinn fyrir þér.
Ég er fallinn fyrir þér.

[af plötunni Í brekkunni – ýmsir]