Stundum

Stundum
(lag og texti: Una Torfadóttir)

Stundum er ég sterk.
Stundum get ég ekkert gert svo ég
sit og sakna og syrgi og sé
mikið eftir þér.

Stundum er ég leið.
Stundum man ég ekkert hvað var að,
spyr mig hvernig ég gat sært
allt sem var mér kært.

Stundum er ég stolt.
Stundum er ég viss um hvernig fór.
Klappa mér á bakið mitt,
hætti að hugsa’ um þitt.

Stundum er ég sár.
Velti stundum fyrir mér hvort þér
líði betur eða verr
án mín eða með.

Stundum er ég góð.
Stundum get ég samið ljóð um eitthvað annað en þig,
fléttað um það fallegt lag.
Tókst það ekki í dag?

[af smáskífunni Una Torfa – Flækt og týnd og einmana]