Takið eftir því (Þjóðhátíðarlag 1942)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson))
Að standa sem hetjur
og starfa eins og lífið býður
sé stefna vor allra,
því tíminn frá oss líður.
Hvert sinn, er morgunn skín við ský
sé skylda dagsins ávallt ný ,
takið eftir því.
En gleymum þó eigi
að gleðin hún er lífsins stjarna
sem gefur oss yndi
og ljóma slær á vegi farna.
Í Herjólfsdal með horskum gný
vér höldum þjóðhátíðarfrí,
já takið allir eftir því.
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































