Tangó

Tangó
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Hún var alin upp til þess að giftast,
liggja á bakinu og fjölga sér.
Hún var alin upp sem Aristókrat dama,
upp á punt til þess að þóknast þér.

Þau búa í 3ja hæða villu,
dreymir um myndir eftir Van Gogh.
Eru með sænska Au pair sem kallar sig Lillu,
reykir gras og hlustar á rokk.

Hún drepur tímann malandi uppí sófa,
les reyfara, dreypir á Bristol Cream.
Virðir fyrir sér myndir eftir Alfreð Flóka,
hugleiðir hvort karlmenn séu svín.

Í boðunum er hún hans stoð og stytta,
spjallar um bókmenntir og sjaldgæf vín.
Kona sem þig dreymir um að hitta,
kona sem gefur blindum sýn.

Hún virðist vera hamingjusöm kona
sem á nóg af öllu, alltaf frí.
Samt hún skríður um með klafann á baki,
hennar heimur er fyrir mér botnlaust dý.

[af plötunni Utangarðsmenn – Geislavirkir]