Þá veistu svarið (Eurovision – Ísland 1993)
(Lag / texti: Jon Kjell Seljeseth / Friðrik Sturluson)
Opnaðu augun, sjáðu hvar þú ert.
Ég er og bíð þín þar.
Hugurinn ber þig aðra leið en hvert?
Enn heldurðu’ af stað,
brenna spurningar.
Ég bíð!
Þú leitar svara út um allt.
Hvar endar þessi ferð?
Til hvers er farið?
Þá líða ár
og láta uppi lítið ráð.
Ef leitarðu til mín
þá veistu svarið.
Því ert að hlaupa, leita langt og skammt.
Ég leynist þér ei,
ég er allsstaðar.
Ég bíð.
Þú leitar svara út um allt.
Hvar endar þessi ferð?
Til hvers er farið?
Þá líða ár
og láta uppi lítið ráð.
Ef leitarðu til mín
þá veistu svarið.
Ég bíð.
Þú leitar svara út um allt.
Ef leitarðu til mín
þá veistu svarið.
[m.a. á smáskífunni Inga – Þá veistu svarið / Midnight dancer [ep]]
