Það er sumar í sveitinni okkar
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)
Sjáðu, vinur minn litli, hvað lindin er tær.
Sjáðu litinn á fjallinu, hvað hann er skær.
Sjáðu svanina hvítu þar suður við á.
Og sjáðu hvað áin er falleg og blá.
Viðlag
Það er sumar í sveitinni okkar
og sólin á jöklana skín.
Útá hlað kemur pabbi og létt er hans lund
og hann litast um túnið sitt drykklanga stund.
Og hann segir: „Mér finnst ég sé fæddur á ný.“
Og hann fær sér í nefið í tilefni af því.
Viðlag
Uppá haugnum við fjósið fer haninn á stjá
og hænurnar dáleiddar mæna hann á,
þennan kónglega fugl með sitt kónglega nef
sem af kónglegum virðuleik stígur hvert skref.
Viðlag
Þarna er hvolpurinn Flóki með fannhvítan haus.
Hann er fimm vikna gamall og áhyggjulaus;
og hans hamingja mesta og ánægja er
að eltast í hringi við skottið á sér.
Viðlag
Sko, nú byrjar hann kolótti kálfurinn minn
að kankast og glettast við heimalninginn.
Og þeir þjóta af stað yfir þúfur og grjót
eins og þeir séu komnir á íþróttamót.
Viðlag
Og kötturinn liggur í kyrrð og í ró
hjá kofanum gamla á stafla af mó.
Það er fólgin sú speki hans andliti í
sem á útlensku heitir víst fílósófí.
Viðlag
[m.a. á plötunni Þrjú á palli ásamt Sólskinskórnum – Ný barnaljóð Jónasar Árnasonar]














































