Það sem enginn sér (Eurovision – Ísland 1989)

Það sem enginn sér (Eurovision – Ísland 1989)
(Lag og text: Valgeir Guðjónsson)

Lýstu mína leið
lostafulli gamli máni,
þótt gatan virðist greið
er samt ýmislegt sem enginn sér.
Veröldin er full
af fólki í leit að hamingjunni
sem glóir eins og gull
í glætunni – ó tungl, frá þér.

Horfðu aftur í augun á mér.
Horfðu aftur, ég bíð eftir þér.
Horfðu aftur í augun á mér
og þú færð að sjá það sem enginn sér.

Allir eiga þrá
um eitthvað sem þeir engum segja,
ég ætla ef ég má
að eiga leyndarmál með þér.
Lýstu mína leið
ó þú lostafulli gamli máni,
þótt gatan virðist greið
er samt ýmislegt sem enginn sér.

Horfðu aftur í augun á mér.
Horfðu aftur, ég bíð eftir þér.
Horfðu aftur í augun á mér
og þú færð að sjá það sem enginn sér.

Horfðu aftur í augun á mér.
Horfðu aftur, ég bíð eftir þér.
Horfðu aftur í augun á mér
og þú færð að sjá það sem enginn sér.

[m.a. á plötunni Valgeir Guðjónsson og Daníel Ágúst Haraldsson – Það sem enginn sér [ep]