Þjóðhátíðarlag (Þjóðhátíðarlag 1975)
(Lag og texti: Gylfi Ægisson)
Nú hátíð enn við höldum
það hlýlegt alltaf er,
er hústjöldum við tjöldum
teygum sykurvatn og ger,
á Breiðabakka dönsum við
og döðrum nú í ár,
því Dalurinn er enn af vikri sár.
Flugeldar og brenna,
já gleði koma á kreik
svo krakkar jafnt sem fullorðnir
bregða sér á leik.
Allir eru ánægðir
og allir skemmta sér
alltaf hreint á þjóðhátíðum hér.
Dönsum nú og dönsum,
dönsum fram á dag,
augnablik ei stönsum
en raulum þetta lag.
Öll nú verðum ánægð,
já öll nú létt í lund,
lifum saman þessa unaðsstund.
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































