Út við Sund og Eyjar (Þjóðhátíðarlag 1994)
(Lag / texti: Gísli Helgason / Guðjón Weihe)
Út við sund og Eyjar
ómar hlátur skær.
Á fjallamenn og meyjar
mánaleiftri slær.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund,
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Er dvína dagsins ómar
og dofnar sólarglóð,
kvöldsins hörpuhljómar
heilla dreng og fljóð.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund,
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Söngur ávallt eykur
Eyjamannsins fjör.
Nú er lífið leikur
og lund í gleði ör.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund,
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Er dvína dagsins ómar
og dofnar sólarglóð,
kvöldsins hörpuhljómar
heilla dreng og fljóð.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund,
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Hjá ævintýra eldi
út við sundin blá,
á svona kyrru kveldi
kviknar ástarþrá.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund,
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Já, leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
[af plötunni Gísli Helga – Út við Sund og Eyjar]














































