Vandi er um að spá
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsins og kollvikin há.
Á stalli sínum háum híma þeir fölir
og horfa niður mannheima á.
Hér komst ekki gleðin á
elskulega systir.
Við skulum dansa betur þegar birtir.
Nætur langar reika með rauða hvarma
raunaleg hljóðin hljóma þeim frá
þeir seldu landið, logar gull í haugum.
Lifandi dauðir friðinn sinn þrá.
Nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsins og kollvikin há.
Holir eru að innan, engan hafa skugga.
Aldrei í mannheimum dansað þeir fá.
Aldrei í mannheimum dansað fá dauðir.
Dagana björtu aðeins geta þráð.
Hefnist þeim sjöfalt sem svíkja landið.
Svitna þá í víti, hljóta enga náð.
Hér komst ekki gleðin á
elskulega systir.
Við skulum dansa betur þegar birtir.
[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]














































