Verðandi
(Lag / texti: Skálmöld / Snæbjörn Ragnarsson)
Ég er staður og stund,
stafir mínir eru látlausir og beittir.
Ég er gola og grund,
gárur hafsins. Já ég er allt sem er, allt sem er.
Þræðir, bensli og bönd b
indast saman er flétta ég þér örlög.
Höfin, loftið og lönd,
lífið sjálft. Já það fer eins og það fer.
Brunnurinn sýnir málverk og myndir.
Menn og guðir eru daufir og blindir.
Hún er Verðandi, hún er Verðandi.
Ég er Verðandi.
Sitjum allr í sátt,
systur mína hafa bakið hvor í aðra.
Fléttum þrefaldan þátt
þér og öðrum, það fer eins og það fer.
Brunnurinn sýnir málverk og myndir.
Menn og guðir eru daufir og blindir.
Örlög bundin í sælu og syndir.
Ég er Verðandi, Ég er Verðandi.
Ég er Verðandi.
Hún er Verðandi, velmegun og lán.
Hún er Verðandi, útskúfun og smán.
Hún er Verðandi, væntumþykja sönn.
Hún er Verðandi, hatur, níð og bönn.
Hún er Verðandi, vosbúð, hungur, kvöl.
Hún er Verðandi, kræsingar og öl.
Hún er Verðandi, allt sem núna er.
Hún er Verðandi, það fer eins og það fer.
Ég er Verðandi.
[af plötunni Skálmöld – Ýdalir]














































