Við förum hærra (Eurovision – Ísland 2024)

Við förum hærra (Eurovision – Ísland 2024)
(Lag / texti: Ásdís María Viðarsdóttir, Michael Burek, Jaro Omar og Ferras Alqaisi / Ásdís María Viðarsdóttir)

Við förum hærra.
Við förum hærra.

Hélt það yrði auðvelt.
Ég hélt það yrði auðvelt að gleyma.
Stend hér loks við hlið þér
en líður eins og mig sé að dreyma.

Ekki líta niður
og haltu í mig fast.
Segðu mér að ást okkar sé himnasmiður
sem lyftir okkur alla leið.

Við förum hærra.
Hræðist ei neitt því að ég treysti‘ á þig.
Við förum hærra.
Hjartað mitt veit að þú munt leiða mig.
Ég leyfi mér að falla, læt mig falla.
Finn að alsælan heima hjá þér.
Við förum hærra.
Hjartað þitt veit að ég mun leiða þig.

Ástin er svo óræð.
Ég vissi aldrei hvað tæki við.
Áður var ég lofthrædd
en ekki síðan ég hitti þig.

Ekki líta niður
og haltu í mig fast.
Segðu mér að ást okkar sé himnasmiður
sem lyftir okkur alla leið.

Við förum hærra.
Hræðist ei neitt því að ég treysti‘ á þig.
Við förum hærra.
Hjartað mitt veit að þú munt leiða mig.
Ég leyfi mér að falla, læt mig falla.
Finn að alsælan heima hjá þér.
Við förum hærra.
Hjartað þitt veit að ég mun leiða þig.

Við förum hærra.
Við förum hærra.

Við förum hærra.
Hræðist ei neitt því að ég treysti‘ á þig.
Við förum hærra.
Hjartað mitt veit að þú munt leiða mig.

Höldum hærra nú
bara ég og þú.
Ég stend með þér og ég hræðiѕt ei neitt.
Förum hærra nú
bara ég og þú
og allt í einu er veröldin breytt.
Já við förum hærra
því hjartað þitt veit að ég mun leiða þig.

[m.a. á plötunni Hera Björk – Scared of heights [ep]]