Vögguvísa [9] (Þjóðhátíðarlag 1965)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ (Ástgeir Ólafsson))
Ég vildi geta sungið þér sumarið að hjarta,
sólskinsdaga bjarta
mitt ljósra nátta ljóð.
Ég vildi geta leikið þér lög og kviður ýta,
landsins græna, hvíta
með fornan sagnasjóð.
Leiði þig dísir gullna gæfubraut
en gæt þess barn, að mörg er lífsins þraut.
Ég vildi geta sungið þér sumarið að hjarta
sólskinsdaga bjarta
mitt ljósra nátta ljóð.
Sóló
Leiði þig dísir gullna gæfubraut
en gæt þess barn, að mörg er lífsins þraut.
Ég vildi geta leikið þér lög og kviður ýta,
landsins græna, hvíta
með fornan sagnasjóð.
[m.a. á plötunni Guðrún Gunnarsdóttir – Eilífa tungl]














































