Yfir strikið
(Lag / texti: Hafsteinn Þráinsson og Una Torfadóttir / Una Torfadóttir)
Við reyndum allt
en allt kom fyrir ekki.
Við reyndum allt of lengi
en ég sé engu eftir.
Þú lærðir meira en ég,
held ég
en ég lærði meira en þú,
heldur þú.
Finnst þér að ég sé að
fara yfir strikið?
Ég veit að ég er vön
að segja allt of mikið.
Viltu að ég þegi?
Viltu að ég segi hvað ég er að pæla?
Ég skal syngja um það.
Hvað vantaði?
Hvað var það sem gekk ekki?
Þegar stórt er spurt er bókað mál
að við svörum því ekki.
Þú veist að ég veit
ekki neitt
en ég veit að þú veist
ekkert heldur.
Finnst þér að ég sé að
fara yfir strikið?
Ég veit að ég er vön
að segja allt of mikið.
Viltu að ég þegi?
Viltu að ég segi hvað ég er að pæla?
Ég skal syngja um það.
Finnst þér að ég sé að
fara yfir strikið?
Ég veit að ég er vön
að segja allt of mikið.
En viltu að ég þegi?
Viltu að ég segi hvað ég er að pæla?
Ég veit að ég er vön
að segja allt of mikið.
Viltu að ég segi hvað ég er að pæla?
[af plötunni Una Torfa – Sundurlaus samtöl]














































