Í febrúar 1901 hélt söngfélag sem virðist hafa borið nafnið Söngfélagið Alfa, samkomu til heiðurs Jónasi Helgasyni söngforkólfi í samkomuhúsinu Bárunni en um var að ræða kveðjusamsæti eða skilnaðarsamkomu svo hér er giskað á að hann hafi verið fráfarandi söngstjóri söngfélagsins.
Að öðru leyti er ekki að finna neinar aðrar heimildir um þetta söngfélag og er því hér með óskað eftir frekari upplýsingum um það.














































