Afmælisbörn 2. ágúst 2023

Hlynur Aðils

Í dag koma tvö tónlistartengd afmælisbörn við sögu á skrá Glatkistunnar:

Hlynur Aðils Vilmarsson tónlistarmaður er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Hlynur starfaði með ungsveitum á borð við No comment og Strigaskóm nr. 42 hér áður en hann fór í tónsmíðanám en hann hefur unnið til og verið tilnefndur til ýmissa verðlauna fyrir tónverk sín. Aðrar sveitir sem hann hefur unnið með er eru m.a. Trabant, Vinir Saddams, Fallega gulrótin, Njúton (Atonal future / Aton) og Olympia.

Mist (Barbara) Þorkelsdóttir – annað tónskáld á einnig afmæli í dag en hún er sextíu þriggja ára gömul. Hún nam bæði píanó- og semalleik áður en hún fór í tónsmíðanám til Bandaríkjanna. Verk hennar og sönglög má m.a. finna á plötum Tinnu Þorsteinsdóttur, Laufeyjar Sigurðardóttur & Elísabetar Waage, Ásgerðar Júníusdóttur, Sigurbjörns Bernharðssonar & James Howsmon og Arnar Magnússonar. Hún hefur einnig starfað við LHÍ og að félagsmálum tónlistarmanna.

Vissir þú að tónlistarmaðurinn Kári sem nú er að vekja athygli fyrir sína fyrstu plötu, er sonur Egil Helgasonar fjölmiðlamanns sem einnig var í tónlist á sínum yngri árum?