Afmælisbörn 17. september 2023

Magnús Jóhann

Tónlistartengdu afmælisbörn Glatkistunnar eru fimm í þetta skipti:

Smári Jósepsson gítarleikari eða bara Smári Tarfur er fjörutíu og sjö ára gamall í dag. Tarfurinn hefur starfað með alls kyns ólíkum sveitum eins og Quarashi, Spitsign, Ylju, Belford, Porker og dúettnum Hot damn, og hefur einnig gefið út fjölda sólóplatna og m.a. efni sem hann samdi og seldi við Seljalandsfoss meðan hann lék á gítarinn úti í náttúrunni. Þá hefur hann leikið á plötum Emmsjé Gauta, Cell 7, Poetrix o.fl.

Bjarni Magnús Sigurðarson gítarleikari Mínuss er fjörutíu og tveggja ára gamall í dag. Bjarni hefur leikið með ógrynni hljómsveita í gegnum tíðina en flestar þeirra eru í rokkaðri kantinum, hér má nefna sveitir eins og Melrakka, Mother glory, Stóns, Spitsign, Útlagahippana, The Bad habits, Tungl og Sororicide.

Tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann (Ragnarsson) á í dag tuttugu og sjö ára afmæli. Magnús Jóhann þekkja margir af nýlegu samstarfi hans við GDRN en hann á einnig sólóplötur og -feril að baki, keppti m.a. í Músíktilraunum 2016 og lenti þar í þriðja sæti auk þess að vera kjörinn besti hljómborðsleikarinn. Hann hefur jafnframt starfað með fjölda hljómsveita s.s. Prime cake, Steinunni og Electric elephant, og komið við sögu á plötum hjá fjölda tónlistarfólks.

Guðmundur Thoroddsen (1952-96) hefði átt afmæli á þessum degi en hann var einn meðlima hljómsveitarinnar Diabolus in musica, sem gaf út tvær plötur á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Þar lék Guðmundur á hin ýmsu hljóðfæri svo sem píanó, harmonikku, slagverkshljóðfæri og klarinettu auk þess að syngja enda var hann fjölhæfur mjög.

Að síðustu er hér nefndur Gunnar Óskarsson en hann hefur oft verið kallaður fyrsta íslenska barnastjarnan. Gunnar (fæddur 1927) söng inn á þrjár 78 snúninga plötur (sem voru seldar saman í pakka) aðeins tólf ára gamall árið 1940 og var hann iðulega kallaður „Gunnar Óskarsson tólf ára“. Hann var þá yngstur allra til að syngja inn á plötur á Íslandi, hann hafði þó byrjað að syngja opinberlega nokkru fyrr. Gunnar lést 1981.

Vissir þú að Sigríður Ella Magnúsdóttir óperusöngkona lærði á fiðlu á barnsaldri?