Handan grafar (1981)

Haustið 1981 starfaði um nokkurra mánaða nýbylgjusveit sem bar nafnið Handan grafar. Meðlimir þessarar sveitar voru Árni Daníel Júlíusson sem vann með hljóðin (hljóðgervla, trommuheila og segulband) og Birna Magnúsdóttir söngkona en einnig var Óskar Jónasson viðloðandi sveitina, lék á saxófón og annaðist myndskreytingar á tónleikum – hann vann m.a. með myndefni úr heimsstyrjöldinni síðari sem hann varpaði á tjald aftan við sveitina.

Handan grafar kom aftur saman haustið 2017 og lék þá á Fullveldispönkhátíðinni í kjallara Hard rock.

Nokkrar upptökur voru gerðar með Handan grafar í æfingahúsnæði sveitarinnar við Suðurgötu og þær má heyra á Soundcloud-síðu hennar.