Óskað er eftir upplýsingum um hljómsveit á Akureyri sem starfaði undir nafninu Hanni og félagar, og virðist sem hún hafi haft einhver sérstök tengsl við Menntaskólann á Akureyri því hún kom í nokkur skipti fram innan skólans á árunum 1979 til 87 að minnsta kosti og virðist hafa leikið gömlu dansa tónlist.
Hér er óskað eftir frekari upplýsingum um þessa sveit, um meðlimi hennar og hljóðfæraskipan, starfstíma og tilurð hennar almennt.














































