Fáar heimildir er að finna um hljómsveit sem gekk undir nafninu Hawai tríóið en hún starfaði líkast til á Akranesi á árunum 1952-53, hugsanlega lengur.
Það munu hafa verið þeir Óðinn G. Þórarinsson harmonikkuleikari, Ole Ostergaard trommuleikari og Helga Jónsdóttir sem myndu tríóið, að minnsta kosti þegar þau léku í útvarpsþætti hjá Pétri Péturssyni árið 1952 en þeir Óðinn og Ole störfuðu mikið saman. Helga var eiginkona Ole en ekki liggur neitt meira fyrir um Hawai tríóið og hvað þá hvaðan nafn tríósins kom.














































