Hálfköflóttir (1997-99)

Pöbbasveitin Hálfköflóttir starfaði um þriggja ára skeið fyrir síðustu aldamót og var einkum á höfuðborgarsvæðinu við spilamennsku en fór einnig út á landsbyggðina s.s. til Ísafjarðar, Vestmannaeyja og víðar.

Hálfköflóttir (starfandi 1997-99) voru fyrst um sinn að minnsta kosti dúett, skipaður þeim Óla Pétri [?] og Inga Val [Grétarssyni] en þeir lögðu áherslu á írskættaða tónlist sem reikna má með að þeir hafi báðir leikið á gítara. Ekki er ólíklegt að bæst hafi í mannskapinn þegar leið á því Hálfköflóttir voru oft auglýstir sem hljómsveit.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.