
Svavar Guðmundsson
Þá er komið að afmælisbörnum Glatkistunnar en að þessu sinni eru fimm slík á skrá:
Lýður Árnason læknir og tónlistarmaður frá Flateyri á sextíu og eins árs afmæli í dag. Lýður hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, verið í hljómsveitum á borð við Kartöflumúsunum, Vítamíni, Grjóthruni í Hólahreppi og Göglum svo fáeinar séu nefndar. Hann var einnig viðloðandi Karlrembuplötuna sem kom út fyrir um fimmtán árum og vakti athygli.
Kristján Þór Matthíasson rappari fagnar í dag fjörutíu og þriggja ára afmæli sínu. Kristján Þór, sem einnig gekk undir nafninu StjániHeitirMisskilinn var áberandi í rappsenunni upp úr aldamótum og rappaði með sveitum eins og KVS (Kaldhæðni við stjórn), S og S, Skyttunum þremur, The No Bullshit Campaign (NBC) og Afkvæmum guðanna, sem sumar hverjar gáfu út plötur á sínum tíma.
(Karl) Ellert Karlsson trompet- og píanóleikari og lúðrasveitastjórnandi átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést 2022. Ellert (fæddur 1944) var framarlega í starfi lúðrasveita hérlendis sem stjórnandi og útsetjari en hann stjórnaði t.a.m. sveitum eins og Lúðrasveit verkalýðsins, Lúðrasveit Vestmannaeyja, og Stórlúðrasveit SÍL svo aðeins fáeinar séu nefndar. Þá lék hann með Lúðrasveit Vestmannaeyja, Big bandi ´81, Lúðrasveitinni Svani, Tacton sextettnum, Öðlingum og fleiri sveitum.
Þá hefði Svala Nielsen óperusöngkona einnig átt afmæli í dag en hún lést árið 2016. Svala fæddist 1932, nam söng fyrst hér heima en síðan á Ítalíu og í Þýskalandi, hún söng síðar ýmis óperuhlutverk, með Einsöngvarakórnum en einnig sem einsöngvari á tónleikum, t.d. með Karlakór Reykjavíkur, bæði hér heima og erlendis. Söng hennar má heyra á mörgum plötum en hún gaf einnig sjálf út eina einsöngsplötu 1976.
Að síðustu er hér nefndur Skagfirðingurinn Svavar (Sigpétur) Guðmundsson tenórsöngvari (1905-80). Hann bjó lengst af fyrir norðan, söng í kórum og kom einnig fram sem einsöngvari t.d. á samkomum Hvítasunnusafnaðarins þar sem hann var virkur. Svavar söng inn á eina fjögurra laga plötu árið 1967 og kom einnig við sögu sem einsöngvari á plötu Fíladelfíukórsins í Reykjavík tveimur árum síðar.
Vissir þú að tugir kóra hafa starfað meðal Íslendinga víðs vegar um Evrópu síðustu áratugina?














































