Afmælisbörn 24. desember 2023

Rex Beckett

Aðfangadagur jóla hefur að geyma fjögur tónlistartengd afmælisbörn:

Jóhann R. Kristjánsson tónlistarmaður frá Egilsstöðum er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Jóhann er ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en plata hans, Er eitthvað að? frá árinu 1982 hefur öðlast költ-sess meðal poppfræðinga og plötusafnara. Á sínum tíma galt platan afhroð gagnrýnenda en hefur nú fengið uppreisn æru, og er í dag eftirsóttur safngripur.

Heimir Sindrason tannlæknir á einnig afmæli í dag en hann er sjötíu og níu ára gamall. Heimir átti stuttan en gæfuríkan feril sinn sem tónlistarmaður um tvítugt er hann starfrækti þjóðlagadúettinn Heimir og Jónas ásamt Jónasi Tómassyni á meðan þeir voru við nám við Menntaskólann í Reykjavík, þeir gáfu út tvær breiðskífur en Heimir hefur einnig gefið út tvær sólóplötur síðan, um og eftir síðustu aldamót. Þess má geta að Heimir samdi lagið Hótel jörð við ljóð Tómasar Guðmundssonar.

(Reynir) Máni Orrason tónlistarmaður er tuttugu og sex ára gamall á þessum degi. Hann hefur sent frá sér tvær sólóplötur og fjölda smáskífna, þá fyrstu er hann var einungis sextán ára gamall. Máni hefur búið og starfað á Spáni lengstan hluta ævi sinnar.

Og að síðustu er hér nefnd kanadíska tónlistarkonan Rex Beckett en hún er þrjátíu og átta ára gömul í dag. Rex Beckett hefur búið hér á landi í um árabil og var söngkona hljómsveitarinnar Antimony en hefur einnig komið fram undir aukasjálfinu Rex Pistols (áður Discipline) og gefið út plötur undir því nafni.

Vissir þú að Eyþór Arnalds og Móeiður Júníusdóttir starfræktu um skeið dúettinn Bong?