
Sverrir Guðjónsson
Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Sverrir Guðjónsson kontratenór er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Hann var snemma viðloðandi tónlist á æskustöðvum sínum á Hellissandi, söng sjö ára á söngskemmtun við undirleik föður síns (Guðjóns Matthíassonar) og söng inn á tvær litlar plötur aðeins tólf ára gamall. Hann nam söng hér heima og á Bretlandseyjum og hefur síðan sungið inn á fjölmargar plötur, bæði undir eigin nafni og annarra, sem einsöngvari. Hann er einn af stofnendum Voces Thules. Sverrir söng með sveitum á yngri árum s.s. Pónik og þjóðlagatríóinu Þremil. Þess má geta að Sverrir lék á trommur á nokkrum plötum sem Guðjón faðir hans kom að, en Sverrir var þá barn að aldri, um tólf ára gamall.
Þá á tónskáldið og tónlistarkennarinn Karólína Eiríksdóttir sjötíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Karólína hefur verið í fremstu röð íslenskra tónskálda um árabil og hefur samið tónlist af ýmsu tagi, hljómsveita- og kammerverk fyrir minni og stærri hljómsveitir og kóra, óperur, leikhústónlist, söng- og kórlög og margt fleira en mörg verka hennar hafa komið út á plötum, bæði í hennar eigin nafni og annarra s.s. Kammersveitar Reykjavíkur, Hamrahlíðarkórsins, Hymnodiu o.fl.
Vissir þú að eitt sinn var skemmtistaðnum Glaumbæ lokað með lögregluvaldi vegna þess að um tólf hundruð manns voru þar inni en staðurinn hafði einungis leyfi fyrir fimm hundruð og fimmtíu?














































