Anna og grafararnir (1982)

Nýbylgjupönksveitin Anna og grafararnir starfaði um skamma hríð vorið og sumarið 1982 en hún var í raun eins konar afsprengi hljómsveitarinnar Handan grafar sem hafði starfað haustið á undan (1981).

Meðlimir Önnu og grafaranna voru þau Árni Daníel Júlíusson og Egill Lárusson (sem höfðu áður starfað saman í Taugadeildinni) sem léku á hljóðgervla og söngkonan Anna Guðrún Júlíusdóttir (systir Árna Daníels). Síðar kom Ellý í Q4U (Elín Halldórsdóttir) inn í sveitina sem söngkona og starfaði hún ekki lengi eftir það því Q4U var þá endurreist eftir nokkurt hlé og gekk Árni Daníel þá í hana með Ellý.