Hljómsveit Birgis Ottóssonar (1987)

Glatkistan óskar eftir upplýsingum um Hljómsveit Birgis Ottóssonar en hún virðist hafa verið fremur skammlíf sveit sem starfaði vorið 1987. Hugsanlega var þessi sveit í samstarfi við Sigríði Hannesdóttur leikkonu en þau komu fram á samkomum hjá sjálfstæðisflokknum um það leyti. Hér er því óskað eftir frekari upplýsingum um þessa sveit, hverjir skipuðu hana auk Birgis, hljóðfæraskipan o.s.frv.