![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2023/12/hljomsveit-bjarka-arnasonar.jpg?w=300&h=210)
Hljómsveit Bjarka Árnasonar
Litlar upplýsingar er að finna um Hljómsveit Bjarka Árnasonar á Siglufirði sem starfaði á árunum 1949 til 53 hið minnsta en Bjarki þessi var öflugur í ballspilamennsku alla sína ævi og mun hafa leikið á um tvö þúsund dansleikjum ýmist einn eða í félagi við aðra, líklega þó mest með hljómsveitinni Miðaldamönnum.
Á einhverjum tímapunkti var sveitin tríó Bjarka sem að öllum líkindum lék á harmonikku, Egils Steingrímssonar saxófónleikara og Hilmars Jónssonar harmonikkuleikara en líklegt er að fleiri hafi komið við sögu hljómsveitarinnar – talað er um hana sem fjögurra manna hljómsveit í einni heimild og er því óskað eftir upplýsingum þess efnis.