Afmælisbörn 18. janúar 2024

Kristinn Sæmundsson

Sex tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag:

Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari af Skaganum er sextíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Hann nam orgelleik á Akranesi og Reykjavík, fór til Danmerkur í framhaldsnám og hefur starfað sem organisti, stjórnandi kóra og skólastjóri tónlistarskóla t.d. í Grundarfirði og Seltjarnarnesi. Hann var ennfremur í sönghópnum Sex í sveit.

Söngvarinn Páll Rósinkranz (Óskarsson) er fimmtugur og á því stórafmæli í dag. Pál þekkja flestir, honum skaut fyrst á stjörnuhimininn með hljómsveitinni Jet Black Joe, hafði þá reyndar verið í nokkrum hljómsveitum eins og Nirvana, en hefur aðallega fengist við gospel- og sólósöng í seinni tíð. Páll Rósinkranz hefur gefið út fjölmargar sólóplötur, þær eru mestmegnis með eldra efni eftir aðra, og sungið á plötum annarra.

Akureyringurinn Heiðar Ingi Svansson bókaormur er fimmtíu og sex ára gamall á þessum degi. Hann hefur leikið á bassa og gítar með fjöldanum öllum af hljómsveitum í gegnum tíðina og hér má meðal annarra nefna sveitir eins og Trúboðana, Alvildu, Tolstoy, Norður, Skræpótta fuglinn og Hausverk.

Guðmundur Rúnar Lúðvíksson myndlistar- og tónlistarmaður fagnar stórafmæli en hann er sjötugur í dag. Guðmundur Rúnar hefur sent frá sér hátt í tuttugu plötur, þá fyrstu árið 1982 sem innihélt m.a. lagið Súrmjólk í hádeginu en margir muna einnig eftir honum úr kvikmyndinni Nýtt líf þar sem hann söng um „slor og skít“. Þá hefur hann jafnframt starfað með nokkrum hljómsveitum, t.a.m. Í hvítum sokkum, Nýja bandinu, Copy & paste og Óla blaðasala.

Kristinn Skagfjörð Sæmundsson er fimmtíu og átta ára gamall í dag en hann er öllu þekktari undir nafninu Kiddi í Hljómalind eða Kiddi kanína. Kiddi hefur komið að íslenskri tónlist frá ýmsum hliðum, rekið plötubúðir um árabil, annaðist dreifingu og útgáfu á tónlist, útgáfu tónlistarblaðs og tónleikahald af ýmsu tagi en hefur nú dregið sig að mestu úr tónlistinni.

Tónlistarkonan Ásta Kristín Pjetursdóttir er tuttugu og átta ára gömul í dag en hún hefur vakið heilmikla athygli hin síðustu ár, fyrst sem lágfiðluleikari sem m.a. sigraði einleikarakeppni Tónlistarskólans í Reykjavík og svo þegar hún lenti í þriðja sæti Músíktilrauna 2019. Í kjölfarið sendi hún frá sér sólóplötuna Sykurbað.

Vissir þú að Pólýfónkórinn var stofnaður af Ingólfi Guðbrandssyni árið 1957?