Afmælisbörn 19. janúar 2024

Árni Tryggvason

Í dag eru fimm afmælisbörn á lista Glatkistunnar, þau eru eftirfarandi:

Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Hann hefur vægast sagt komið víða við á sínum ferli enda fjölhæfur með afbrigðum, spilar á flest hljóðfæri, útsetur og semur tónlist. Framan af var hann í hljómsveitum eins og Náttúru, bjó síðar í Vestmannaeyjum þar sem hann stjórnaði kórum og kenndi tónlist, en eftir að hann eignaðist hljóðverið Stemmu varð það hans aðalstarf. Diddi hefur sérhæft sig í upptökum á kóratónlist og hefur tekið upp hundruðir slíkra platna.

Óttar Felix Hauksson, sem á sínum tíma var talað um sem bítlaaðdáanda númer eitt á Íslandi er líkt og Diddi fiðla, sjötíu og fjögurra ára á þessum degi. Hann lék með sveitum eins og Geislum, Pops og Sonet á árum áður, gerðist umboðsmaður hljómsveita og tónleikahaldari, síðar útgefandi þegar hann stofnaði Sonet útgáfuna. Á síðari árum hefur Óttar Felix starfrækt hljómsveitir eins og Gullkistuna og Specials, auk Pops.

Norðfirðingurinn og athafnamaðurinn Guðjón Birgir Jóhannsson hljómborðsleikari Out loud og hljóðmaður hjá Hljóðkerfaleigu Austurlands  er þrjátíu og níu ára gamall í dag.

Árni Tryggvason eða Lilli klifurmús hefði orðið 100 ára gamall í dag en hann lést á síðasta ári. Árni var fyrst og fremst þekktur sem leikari og allir þekkja hann af plötunni um Dýrin í Hálsaskógi en söng hans og leik er að finna á ótal plötum sem tengjast leiklistinni, þá hafa tvær plötur komið út í nafni Árna – annars vegar lítil plata 1971 og svo önnur með tónlist úr söngleikjum árið 1992.

Sigurður Reynir Pétursson (1921-2007) fyrrverandi framkvæmdstjóri STEFs hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Hann gegndi stöðu framkvæmdastjórans í tuttugu ár, var einnig lögfræðingur samtakanna og FÍH um árabil auk þess að vera framkvæmdastjóri Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda um tíma.

Vissir þú að dúettinn MoR sérhæfði sig í tónlist Duran Duran?