![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2020/09/adalsteinn-isfjord5.jpg?w=204&h=300)
Aðalsteinn Ísfjörð
Í dag er eitt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:
Aðalsteinn Ísfjörð (Sigurpálsson) harmonikkuleikari og múrarameistari hefði átt afmæli þennan dag en hann lést árið 2022. Aðalsteinn sem var Húsvíkingur kom víða við á sínum ferli sem harmonikkuleikari, gaf út sólóplötur og í samvinnu við aðra, og lék með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þar má nefna sveitir eins og Hljómsveit Illuga, Víbra, Húsavíkur-Hauka og GH kvartett en hann kenndi enn fremur á harmonikku við Tónlistarskólann á Húsavík og var einn af stofnendum Harmonikkufélags Þingeyinga.
Vissir þú að Rúrik Haraldsson leikari lék á trompet um tíma í Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar (föður Ragnars Bjarnasonar)?