![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2018/08/bjc3b6rn-c3b3lafsson3.jpg?w=270&h=300)
Björn Ólafsson
Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:
Það er fiðluleikarinn Björn Ólafsson sem átti þennan afmælisdag en hann lést árið 1984. Björn (f. 1917) er talinn meðal frumkvöðla í íslensku tónlistarlífi að mörgu leyti, hann hafði numið hér heima af Þórarni Guðmundssyni en fór síðan til Austurríkis í framhaldsnám og var alltaf ætlunin að starfa þar en heimsstyrjöldin síðari kom í veg fyrir það. Björn varð fyrsti konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og reyndar var talað um hann sem föður sveitarinnar í minningargrein sem birtist um hann. Hann kenndi mörgum af þeim fiðluleikurum sem síðar störfuðu með honum í sinfóníuhljómsveitinni.
Vissir þú að tónskáldið Ingi T. Lárusson samdi lagið Ó blessuð vertu sumarsól þegar hann var aðeins sjö ára gamall?