Heróín (um 1982)

Óskað er eftir upplýsingum um pönksveit sem gekk undir nafninu Heróín (Heroin) en sveitin starfaði að öllum líkindum árið 1982 og jafnvel fram á 1983.

Öruggt er að þessi sveit hafi verið starfandi en engar upplýsingar er hins vegar að finna um hverjir skipuðu hana eða hver hljóðfæraskipan hennar var, þær upplýsingar og meira til væri vel þegið.