Himbrimi [1] (1998)

Unglingahljómsveitin Himbrimi var starfrækt í Hafnarfirði árið 1998 en þá um sumarið lék sveitin á tónleikum í tilefni af 90 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar.

Ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um meðlimi Himbrima eða hljóðfæraskipan en ólíklegt hlýtur að teljast að sveitin sé eitthvað skyld annarri hafnfirskri sveit sem starfaði undir sama nafni um fimmtán árum síðar. Alltént er óskað eftir upplýsingum um þessa sveit.