
Hákon Leifsson
Sex afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum ágæta degi:
Hákon Leifsson kórstjórnandi, organisti og tónskáld er sextíu og sex ára gamall í dag. Hákon sem er doktor í tónlistarfræðum hefur stjórnað fjölda kóra í gegnum tíðina s.s. Vox Academica, Háskólakórnum, Stúdentakórnum, Kirkjukór Keflavíkurkirkju, Kór Grafarvogskirkju og Barnakór Seltjarnarneskirkju svo aðeins fáeinir séu nefndir en hann hefur einnig starfað sem organisti samhliða þeim störfum.
Svavar Lárusson söngvari frá Neskaupstað hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést 2023. Svavar söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur hér á árum áður og meðal laga sem urðu vinsæl með honum má nefna Ég vild‘ ég væri og Hreðavatnsvalsinn. Svavar má með réttu telja einn alfyrsta dægurlagasöngvara Íslands.
Ólafur Fannar Vigfússon (Rufaló) frá Kirkjubæjarklaustri er fjörutíu og níu ára gamall í dag, hann var á árum áður í hljómsveitum eins og Fljótið sem rann og Vírus auk fleiri sveita en gaf árið 1998 úr sólóplötuna Sykurveröld undir nafninu Rufaló. Ólafur er menntaður kvikmyndagerðarmaður.
Margrét Rán Magnúsdóttir tónskáld, söngkona og gítar- og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Vakar er þrjátíu og tveggja ára gömul í dag. Vök sigraði eins og kunnugt er Músíktilraunir árið 2013 og hefur síðan þá gert frábæra hluti en Margrét hafði áður starfað með hljómsveitinni Wipeout.
Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson bassaleikari en fimmtíu og sjö ára gamall í dag. Friðþjófur kemur frá Akureyri og lék þar m.a. með sveitum eins og Bandalaginu og Rjúpunni en þekktastur er hann þó sem bassaleikari Sniglabandsins, sem hann hefur leikið með í áratugi, hann hefur einnig leikið með sveitum eins og BP og þegiðu Ingibjörg og Plast. Bassaleik hans er að finna á fjöldanum öllum af plötum.
Alfreð Clausen sem rétt eins og Svavar Lárusson telst með fyrstu dægurlagasöngvurum Íslandssögunnar, hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann var fæddur fullveldisárið 1918. Plötur Alfreð skipta tugum og lög hans hafa sum hver lifað góðu lífi til dagsins í dag, þeirra á meðal má nefna klassíska slagara eins og Manstu gamla daga, Ömmubæn og Gling gló. Alfreð lést árið 1981.
Vissir þú að Gunnlaugur Briem trommuleikari hefur spilað á inn á þriðja hundrað platna?


